SriChinmoy.org
is More about Sri Chinmoy
x
Sri Chinmoy

Þegar máttur kærleikans
hefur velt úr sessi ástinni á mætti
öðlast maðurinn nýtt nafn:
Guð.

Sri Chinmoy er andlegur kennari, sem leitast við að þjóna mannkyninu og veita innblástur með gjöfum úr ríki andans, í gegnum bænir og hugleiðslu, ritverk, tónsmíðar og myndlist.

Við vonum að einfaldleikinn, hreinleikinn og ljósið frá framlagi Sri Chinmoy verði ykkur einnig til uppörvunar.

Hugleiðsla og andleg ástundun

Video
Videó: Sri Chinmoy hugleiðir

Hugleiðsla er guðleg gjöf. Hún einfaldar ytra lífið og fyllir innra lífið orku. Hugleiðsla skapar okkur innra líf sem verður svo sjálfkrafa og eðlilegt að við drögum ekki andann án vitundar um okkar eigin guðdómleika.

Sri Chinmoy

Meira um hugleiðslu og andlega ástundun

Andlegur meistari

Video

Meistarinn er vinur þinn, eilífur vinur þinn, sem hjálpar þér að skynja hið hæsta í sjálfum þér. Hann hjálpar þér að opna innri fjársjóðskistuna þína með þínum eigin lykli - ekki sínum lykli - og sýnir þér þinn eigin fjársjóð. Eftir að hafa leitt þér fyrir sjónir þinn eigin fjársjóð lítur hann á þátt sinn í leiknum lokið.

Sri Chinmoy

Meira um andlega leið Sri Chinmoys


Þjónusta við heiminn

Sri Chinmoy helgaði líf sitt heimseiningu - ekki aðeins með hugleiðslu sinni heldur einnig í gegnum listir, íþróttir og mannúðarmál.

Sameinuðu þjóðirnar

Að ósk U Thant, fyrrverandi aðalritara Sameinuðu þjóðanna, hóf Sri Chinmoy að leiða hugleiðslu tvisvar í viku fyrir sendiherra og starfslið Sameinuðu þjóðanna í New York.

meira

Friðarhlaupið

Video

Sri Chinmoy heimseiningar friðarhlaupið var sett á stofn árið 1987. Það er alþjóðlegt kyndilboðhlaup sem leitast við að efla vináttu og skilning milli manna um heim allan. Hlaupararnir hlaupa með logandi kyndil sem gengur manna á milli og hefur hlaupið heimsótt yfir 155 lönd um allan heim, þar á meðal Ísland. meira »

Lyftingar

Video

Með þessum lyftingum vil ég sýna fram á að bænir og hugleiðsla geti svo sannarlega aukið ytri getu manns. Þannig vona ég að ég geti hvatt marga til að biðja og hugleiða af einlægni sem hluta af daglegri venju.

Sri Chinmoy

Meira um lyftingar

3100 Mílna hlaup

Sri Chinmoy var ákafur íþróttaiðkandi allt frá yngri árum og hafðí trú á því að íþróttir og andleg ástundun geti farið vel saman. 3100 mílna hlaupið hófst árið 1997 í Queens, New York. Þátttakendur hafa 52 daga til að ljúka vegalengdinni. meira »


Hlý orð frá leiðtogum heimsins

Video

Sýn Sri Chinmoy féll í frjóan jarðveg hjá fólki úr öllum áttum - leiðtogum heimsins, sendiherrum og ríkiserindrekum hjá Sameinuðu þjóðunum, tónlistarmönnum, afreksíþróttamönnum, vaxtarræktarmönnum og leiðtogum mannúðarmála.

Fleiri hlý orð

Sri Chinmoy á Íslandi

Sri Chinmoy með Vigdísi Finnbogadóttur forseta

Sri Chinmoy heimsótti Ísland sex sinnum á árabilinu 1974 til 2003. Hann hélt tónleika og fyrirlestra auk þess sem hann átti fundi með leiðtogum þjóðarinnar í því skyni að vinna friðarhugsjóninni fylgi.

Meira


Skapandi verk

Tónlist

Video
Tónleikar í Háskólabíói Reykjavíkur, 2000

Ég öðlast aðeins frið ef ég deili friði með öðrum. Þess vegna held ég friðartónleika vítt um heiminn. Markmið mitt er aðeins eitt; friður, friður um heim allan.

Aðeins þegar ég hugleiði í þögn eða flyt sálþrungna tónlist finn ég frið í innstu hjartafylgsnum. Á þeirri stundu finnst mér ég virkilega geta þjónað mannkyninu.

Sri Chinmoy

Jharna-Kala: List frá uppsprettunni

Sri Chinmoy var afkastamikill listamaður. Hann kallaði listaverk sín Jharna-Kala, sem þýðir list frá uppsprettunni á bengölsku. Í verkum sínum lætur Sri Chinmoy listina flæða frá hjartanu í streymandi sköpunarmætti. meira »

Ljóð

Allt frá unglingsárum naut Sri Chinmoy þess að skrifa ljóð. Hann hefur samið yfir 150.000 ljóð og spakmæli.

Video


Sri Chinmoy Miðstöðvar

Þúsundir manna viðsvegar um heim, úr öllum stigum þjóðlífsins og öllum trúarbrögðum þjóna sínum samfélögum undir handleiðslu Sri Chinmoys og hvatningu frá honum í gegnum ýmsa viðburði, andlega og menningarlega. Þeir standa einnig fyrir atvinnurekstri. Hér má finna upplýsingar um lífsstefnu nemenda Sri Chinmoys og starfsemi þeirra.

meira »

Sri Chinmoy og íþróttakeppni

Sri Chinmoy var sannfærður um að líkamlegur og andlegur styrkur geti farið saman. Auk þess að vera verðlaunahafi í 100 metra hlaupi og tugþraut á sínum yngri árum setti hann mörg heimsmet í lyftingum og lauk 22 maraþonhlaupum og 5 ultra maraþonhlaupum.    

Sri Chinmoy maraþonliðið stendur árlega fyrir um 500 íþróttaviðburðum, allt frá frjálsíþróttakeppni til heimsins lengsta, viðurkennda, hlaups heims, en það er 3100 mílur. meira »


Tenglar

Sri Chinmoy Bókasafn

Yfir 1600 bækur sem innihalda ljóð, ritgerðir, leikrit og stuttar frásagnir liggja eftir Sri Chinmoy. Orð hans lýsa stórkostlegri og fjölbreyttri vegferð mannsins í leit hans að innra samræmi og skilningi á eigin sjálfi. meira »

Útvarp Sri Chinmoy

Upplifið andríka og hjartnæma tónlist Sri Chinmoy þar sem hann syngur og spilar á tylft hljóðfæra frá öllum heimshornum. meira »

Sjónvarp Sri Chinmoy

Hverfið inn í heim ótakmarkaðrar sköpunargáfu Sri Chinmoy gegnum tónlist hans, myndlist og töluð orð. Sameinist honum nokkur augnablik í þögn hugleiðslunnar. Meira. meira »